ritstjorn

Tilkynning frá Samtökum eigenda sjávarjarða

Tilkynning frá Samtökum eigenda sjávarjarða Samtök eigenda sjávarjarða tilkynna hér með að allar veiðar og önnur atvinnustarfsemi innan netlaga sjávarjarða þar með taldar hrognkelsaveiðar eru bannaðar án leyfis eigenda viðkomandi jarða. Miða skal við fjarlægðarregluna 60 faðma (115 metrar) og dýptarviðmiðið 12 álnir eða 4 faðma (6,88 metrar) dýpi á stórstraumsfjöru varðandi fiskveiðar. Innan þessara

Tilkynning frá Samtökum eigenda sjávarjarða Lesa meira »

Skipun starfshóps til endurskoðunar á fyrirkomulagi fiskveiðistjórnunar.

Nr. 23/2009 – Skipun starfshóps til endurskoðunar á fyrirkomulagi fiskveiðistjórnunar.2.7.2009 Með vísan til stefnuyfirlýsingar núverandi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða, hefur Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipað starfshóp til þess að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunarinnar. Verkefni starfshópsins verður að skilgreina helstu álitaefni, sem fyrir hendi eru í löggjöfinni og

Skipun starfshóps til endurskoðunar á fyrirkomulagi fiskveiðistjórnunar. Lesa meira »

Svar við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur

Svar utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um gæslu auðlinda og hagsmuna í viðræðum við Evrópusambandið. 139. löggjafarþing 2010–2011.Þskj. 885  —  420. mál. Svar Utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um gæslu auðlinda og hagsmuna í viðræðum við Evrópusambandið. 1. Er útræðisréttur sjávarjarða og eignarréttur innan netlaga tryggður í samningaviðræðum við Evrópusambandið?Evrópusambandið kemur ekki að setningu reglna innan 12

Svar við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur Lesa meira »

Svar Jóns Bjarnasonar við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur

Svar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um réttindi sjávarjarða. Fyrirspurnin hljóðar svo: 1.      Verður útræðisréttur sjávarjarða virtur og staðfestur við þá endurskoðun laga um stjórn fiskveiða sem núverandi ríkisstjórn hyggst ráðast í?2.      Verða eignarréttindi sjávarjarða innan netlaga tryggð við endurskoðunina? Tvær einfaldar spurningar voru lagðar fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á Alþingi. Þessu hefði

Svar Jóns Bjarnasonar við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur Lesa meira »

Um stærð netlaga (mars 2011)

Um stærð netlaga sjávarjarða. Tekið saman af Bjarna M. Jónssyni, sérfræðingi í Haf- og strandsvæðastjórnun. Netlög er sá hluti sjávarjarða sem er í einkaeign og er með stjórnarskrár- og lögvarin atvinnu- og eignarréttindi. Jónsbók er hluti af íslensku lagasafni og er í fullu gildi í dag sem lög. Í rekaþætti Jónsbókar segir „En það eru netlög

Um stærð netlaga (mars 2011) Lesa meira »

Mismunandi skýring á orðinu „Netlög“

Mismunandi skýringar á hugtakinu “NETLÖG” í íslenska lagasafninu.(Tekið saman af Bjarna M. Jónssyni, sérfræðingi í haf og strandsvæðastjórnun) Netlög er sá hluti sjávarjarða sem er í einkaeign og er með lögvarin atvinnu- og eignarréttindi. Sjá nánari skýringar um netlögin hér á heimasíðunni. Skúli Magnússon  lektor við lagadeild Háskóla Íslands vann í september árið 2001 álit

Mismunandi skýring á orðinu „Netlög“ Lesa meira »

Bréf til sjávarútvegsráðherra

Óskað hefur verið eftir því við sjávarútvegsráðherra að skipuð verði nefnd til þess að skilgreina eignarhlutdeild sjávarjarða í sjávarauðlindinni. Samtök eigenda sjávarjarða. Pósthólf 90, 780 Hornafirði. Hr. Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra,sjávarútvegsráðuneytinu,Skúlagötu 4,101 Reykjavík. 27. september 2010. Skipun nefndar um skilgreiningu á eignarhlutdeild sjávarjarða í sjávarauðlindinni. Ég vísa í bréf stjórnar Samtaka eigenda sjávarjarða til þín, dags.

Bréf til sjávarútvegsráðherra Lesa meira »

Bréf til utanríkisráðherra

Eignarréttindi sjávarjarða í sjávarauðlindinni. Hr. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, utanríkisráðuneytinu,Rauðarárstíg 25,105 Reykjavík. 13 . október 2010. Eignarréttindi sjávarjarða í sjávarauðlindinni. Ég vísa í grein þína í Fréttablaðinu 11. október 2010 „Við tryggjum ekki eftir á“, þar sem þú segir að þú leggir mikla áherslu á að samtök þeirra sem eiga mikilla hagsmuna að gæta komi ríkulega

Bréf til utanríkisráðherra Lesa meira »

Starfshópur um endurskoðun laga um fiskveiðistjórnun

Björn Erlendsson, ritari í stjórn SES, var valinn fyrir hönd félagsins til setu í starfshóp um endurskoðun laga um fiskveiðistjórnun Þau gleðilegu tíðindi urðu nýlega að Jón Bjarnason, ráðherra ákvað að heimila Samtökum eigenda sjávarjarða að eiga fulltrúa í starfshópi um endurskoðun laga um fiskveiðistjórnun. Björn Erlendsson, ritari í stjórn SES var fyrir hönd félagsins valinn í starfshópinn.

Starfshópur um endurskoðun laga um fiskveiðistjórnun Lesa meira »

Scroll to Top